Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Stækkun Reykjanesvirkjunar, álit Skipulagsstofnunar

Stækkun Reykjanesvirkjunar, álit Skipulagsstofnunar (20.08.09)


Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar og frekari nýtingu jarðhitavökva samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Meðal þess sem kemur fram í áliti Skipulagsstofnunar er að:  

  • Yfirborðsvirkni og breytingar á hverasvæðinu geta haft neikvæð áhrif á fugla, aðallega kríu og hugsanlega einhverjar hveraörverur.
  • Samlegðaráhrif núverandi virkjunar og stækkunar hennar geta verið verulega neikvæð með tilliti til gróðurs vegna áhrifa á yfirborðsvirkni.
  • Aftur á móti kunna áhrifin að vera jákvæð fyrir sumar tegundir gróðurs og hugsanlega ferðamenn sem leið eiga um svæðið. Aukin yfirborðsvirkni hefur eyðilagt aðstöðu sem búið var að byggja upp fyrir ferðamenn í kringum hverasvæðið við Gunnuhver og takmörkun aðgengis og lokun svæðisins hefur skaðað ferðamennsku á Suðurnesjum mikið.
  • Hávaði, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma, getur haft neikvæð áhrif á upplifun ferðamanna sem fara um svæðið.
  • Með tilliti til áhrifa á ferðaþjónustu og útivist er það mat Skipulagsstofnunar að jarðvarmavirkjun falli illa að svo sérstæðu svæði sem Reykjanes er náttúrufarslega.
  • Samlegðaráhrif núverandi og fyrirhugaðra framkvæmda eru verulega neikvæð, með tilliti til landslags, nútímahrauna og verndargildis svæðisins.
  • Í ljósi mismunandi skoðana, framkvæmdaraðila og sérfræðinga á vegum hans annars vegar og Orkustofnunar hins vegar, er erfitt að leggja mat á hver verði raunveruleg áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á jarðhitakerfið. Einnig er mikil óvissa til staðar um áhrif á jarðhitakerfið, m.a. vegna stutts vinnslutíma.
  • Óvissa er um áhrif vegna aukins magns affallsvatns sem berast mun til sjávar vegna fyrirhugaðrar stækkunar á lífríki sjávar og fjöru.
  • Framkvæmdir við núverandi virkjun, vaxandi yfirborðsvirkni og fyrirhugaðar framkvæmdir við stækkun á og við svæði þar sem krían hefur orpið í gegnum tíðina, hefur haft og kann að hafa neikvæð áhrif á kríuvarp þó að fæðuskortur og ágangur vegfarenda hafi einnig neikvæð áhrif.


Skipulagsstofnun telur að við leyfisveitingar fyrir framkvæmdinni þurfi að gera HS Orku að standa fyrir vöktun á áhrifum virkjunarinnar á kríu, gróður, lífríki sjávar og fjöru og hitakærar örverur.

Nánari upplýsingar um verkefnið og álit Skipulagsstofnunar má finna hér á vef VSÓ og á vef Skipulagsstofnunar

 

 

 

 

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is