Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2008-2024 (04.06.09)
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008 - 2024 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 29. maí 2009 til og með 10. júlí 2009. Tillöguna má einnig skoða hér á vefnum.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 31. júlí 2009. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2008-2024 er samstarfsverkefni VSÓ Ráðgjafar og Kanon arkitekta. Um er að ræða fyrsta verkefni þessara ráðgjafastofa sem snýr að heildarendurskoðun skipulags. Samstarfið hefur leitt til margvíslegra nýjunga, sem hafa aukið gæði og notagildi skipulagsins. Þessi fyrirtæki vinna nú að fleiri stórum skipulagsverkefnum s.s. Aðalskipulagi Sandgerðisbæjar og Svæðisskipulagi Suðurnesja.
|