Svæðisskipulag Suðurnesja, tillaga að niðurfellingu (03.06.09)
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja auglýsir hér með tillögu að niðurfellingu Svæðisskipulags – Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkurflugvöllur 1995 – 2015, skv.13. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Tillagan verður til sýnis á Bæjarskrifstofunum Grindavíkurbæ Víkurbraut 62, Sandgerðisbæ, Vörðunni, Miðnestorgi 3, Reykjanesbæ Tjarnargötu 12, Sveitarfélaginu Garði Sunnubraut 4 og Sveitarfélaginu Vogum Iðndal 2. Tillagan er einnig til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með 3. júní 2009 til og með 1. júlí 2009. Tillöguna má einnig skoða á heimasíðum sveitarfélaganna, www.sandgerdi.is, www.reykjanesbaer.is, www.svgardur.is, og á heimasíðum Keflavíkurflugvallar ohf, www.kefairport.is, Kanon arkitekta, www.kanon.is og VSÓ Ráðgjafar
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 15. júlí 2009.
Skila skal athugasemdum á Bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.

|