Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - VSÓ á tindinum á ný

VSÓ á tindinum á ný (13.05.09)

 

Göngugarpar VSÓ á HrútfjallstindumMeðal starfsmanna VSÓ Ráðgjafar er starfræktur fjallgönguhópur sem, eins og nafnið gefur til kynna, hefur það að markmiði að ganga á fjöll og klífa tinda. Í maí árið 2008 sigruðu göngugarparnir Hvannadalshnjúk en þetta árið var áfangastaðurinn hinir stórbrotnu Hrútfjallstindar, ofan Svínafellsjökuls.

Fimmtán manna hópur, sem samanstóð af starfsfólki VSÓ og þeirra nánustu, lagði upp frá bílastæðinu við tungu Svínafellsjökuls kl. 04:50 að morgni laugardagsins 9. maí 2009 og var þaðan gengið upp Hafrafell að vestan og upp í Sveltisskarð sem er í norð-vestur hlíðum fjallsins.  Þaðan lá leiðin um stórbrotið land með útsýni til austurs á Hvannadalshnjúk og undirhlíðar hans, sem eru á því svæði eitt samfellt jökulfall með öllum þeim tilbrigðum sem slíkt landslag hefur upp á að bjóða þegar geislar vorsólar að morgni baða snævi þaktar hlíðar þessa mesta jökuls Evrópu.

HrútfjallstindarUppganga hópsins gekk vel þrátt fyrir mikinn vind um tíma en eftir að komið var í um 1.400 m hæð brast á með blíðu og þegar komið var upp á Vesturtind (1.760 mys) blasti við hópnum stórkostlegt útsýni til allra átta. Þá var þó ekki björninn unninn og runnu tvær grímur á suma í hópnum þegar leiðangursstjórarnir, Einar og Haukur, fóru að útskýra að nú þyrfti að fara niður af tindinum og upp á þann hæsta.  Til að gera langa sögu stutta þá tókst leiðangursstjórum að tala alla í hópnum inn á það að ljúka takmarkinu og sú varð reyndin,  á Hátindi (1.865 mys) stóð síðan hópurinn um klukkan 13:00.

 Á niðurleiðinni lék veðrið við hvurn sinn fingur og það voru sólbrenndir og sælir félagar sem fögnuðu fjórtan tímum eftir að lagt var af stað og verður það að teljast ágætur árangur fyrir Hrútsfjallstindagöngu þar sem farið er á tvo tinda.  

 

 

 

 

 

 

 

 

Dagurinn verður hópnum sjálfsagt ógleymanlegur og án efa er vel heppnað verkefni á við þetta til að efla fólk til frekari dáða í starfi og leik. Til gamans má geta að hópurinn var varla komin niður þegar farið var að ræða hvaða markmið ætti að setja fyrir næsta vor... 

 

Eftirfarandi aðilar komust á toppinn:

 

Einar Kristján Stefánsson
Erika Frodell
Fríða Björg Eðvarðsdóttir
Frosti Gunnarsson
Guðbjartur Magnússon
Hafliði Richard Jónsson
Haukur Hlíðkvist Ómarsson
Helga P. Finnsdóttir
Hjördís Arnardóttir
Katrín S. Guðjónsdóttir
Maríus Þór Jónsson
Sigurlaug Þórðardóttir
Snorri Maríusson
Vilhjálmur Árni Ásgeirsson
Þórdís Halldórsdóttir


Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is