Sveitarfélagið Garður - Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi (20.04.09)
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs auglýsir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Garðs 1998-2018 m.s.br. samkvæmt 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. ásamt umhverfisskýrslu breytingartillögunnar skv. 7.gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Tillagan felst í breytingu á landnotkun á fyrrum varnarsvæði sem fært hefur verið í borgaraleg not og breyttri legu jarðstrengja til samræmis við áætlanir Landsnets um orkuöflun vegna álvers í Helguvík. Heildarstærð landnotkunarreita sem breytingin nær til er um 60 ha, þar af um 50 ha athafnasvæði og 10 ha verslunar- og þjónustusvæði. Tengingum við þjóðveg er bætt við vegna nýrra landnotkunarreita.
Breytingartillaga Aðalskipulags ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Garðs, Sunnubraut 4, Garði og í sýningarsal Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, Reykjavík frá og með mánudeginum 20. apríl nk. til mánudagsins 18. maí 2009. Tillögurnar er einnig hægt að skoða á heimasíðu Sveutarfélagsins Garðs og hér á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með mánudeginum 1. júní 2009.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Garðs, Sunnubraut 4, 250 Garði.
Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
|