Endurbætur á þaki Sundlaugar Seltjarnarness - Útboð (16.04.09)
Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í endurbætur á þaki búningsklefa og afgreiðslu sundlaugar bæjarins.
Verkefnið felst í að fjarlægja núverandi pappa og klæðningu, skipta út hluta burðarvirkis, bæta við einangrun og klæða með borðaklæðningu og þakpappa ásamt því að koma fyrir nýjum loftventlum í þaki.
Helstu magntölur eru:
- Þak: 715 m2
- Einangrun: 700 m2
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 7. apríl í móttöku VSÓ Ráðgjafar. Hægt er að óska eftir gögnum á rafrænu formi með því að senda póst á netfangið vso@vso.is.
Tilboðum skal skilað í móttöku VSÓ Ráðgjafar eigi síðar en kl. 14:00 miðvikudaginn 29. apríl 2009.
|