Stækkun Reykjanesvirkjunar, kynningarfundur (06.04.09)
Haldinn var þann 2. apríl síðastliðinn í Eldborg Svartsengi, kynningarfundur á vegum HS Orku um niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar.
Á fundinum kynnti Björn H. Barkarson, VSÓ Ráðgjöf, helstu framkvæmdaþætti verkefnisins, matsferlið og helstu umhverfisáhrif. Einnig sýndi Guðmundur Ómar Friðleifsson, jarðfræðingur HS Orku, myndir af hverasvæðinu frá ýmsum tíma sem endurspegla breytingar sem þar hafa orðið.
Veggspjöld voru til sýnis þar sem gat að líta myndir af svæðinu og skýringar á umhverfisáhrifum og aðgerðum sem vega eiga upp á móti neikvæðum áhrifum framkvæmdanna. Ekki var fjölmenni á fundinum en góðar umræður spunnust yfir kaffibolla og kleinum sem reidd voru fram í boði HS Orku.
Kynning fundarins

|