Stækkun Reykjanesvirkjunar - Frummatsskýrsla (26.03.09)
Lokið er gerð frummatsskýrslu vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar og frekari nýtingu jarðhitavökva. Framkvæmdaraðili er HS OrKa og hefur VSÓ Ráðgjöf verkstýrt matsvinnunni í samvinnu við þá.
Í frummatsskýrslu er fjallað um helstu umhverfisáhrif af stækkun Reykjanesvirkjunar um 50 MWe og byggingu og rekstri 30-50 MWe pækilvirkjunar. Vegna stækkunarinnar er áætlað að bora þurfi 8 vinnslu- og varaholur til öflunar orku auk þess að auka þarf sjónám.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að auka framleiðslugetu Reykjanesvirkjunar til að mæta eftirspurn eftir raforku, m.a. vegna áforma um byggingu álvers í Helguvík, stækka varmatökusvæði virkjunarinnar og bæta nýtingu þeirrar orku sem aflað er.
Helstu neikvæð umhverfisáhrif vegna framkvæmdanna samkvæmt matsvinnunni verða á hljóðvist, ferðamennsku og jarðhitageyminn. Jafnframt er óvissa um umhverfisáhrif framkvæmdanna. Annars vegar felst óvissan í áhrifum vinnslu á jarðhitageyminn sem auðlind en einnig um afleidd og óbein áhrif vinnslunnar sem koma fram á yfirborði s.s. í breytingum á virkni hvera, sem aftur hefur áhrif á lífríki.
Skipulagsstofnun hefur tekið frummatsskýrsluna til athugunar. Kynning á frummatsskýrslu og réttur til að skila inn athugasemdum er frá 26. mars til 8. maí 2009. Athugasemdir eða ábendingar skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar.
Niðurstöður mats á umhverfisáhrifum verða kynntar fimmtudaginn 2. apríl 2009 kl. 17:00 til 18:30, í Eldborg í Svartsengi.
Hægt er að nálgast frummatsskýrsluna hér á vef VSÓ Ráðgjafar en einnig á vef HS Orku.
Stækkun Reykjanesvirkjunar - Frummatsskýrsla

|