Íþróttamiðstöð ÍR í Suður-Mjódd (23.02.09)

Þann 13. febrúar síðastliðinn skrifuðu fulltrúar Byggingarnefndar Íþróttamannvirkja í Suður-Mjódd og ASK Arkitekta undir samning um hönnun fjölnota íþróttahúss Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) í Suður-Mjódd.
Arkitektar til að vinna að verkefninu voru valdir að loknum tveggja þrepa samkeppnisviðræðum sem fóru fram á haustmánuðum ársins 2008.
Fjórir arkitektahópar voru, að loknu forvali í ágúst, valdir til að taka þátt í samkeppnisviðræðunum og fengu þeir tæplega tvo mánuði til að vinna tillögur sínar. Á því tímabili miðju gafst hverjum og einum hóp jafnframt kostur á að kynna tillögu sína fyrir verkkaupa og skiptast á skoðunum um hana á sérstökum kynningarfundi.
Hóparnir fjórir skiluðu inn tillögum sínum um miðjan október og voru þá tveir hópar, ASK arkitektar og Batteríið, valdir til að halda áfram í annað þrep keppninnar og þróa tillögur sínar lengra, í samræmi við athugasemdir verkkaupa.
Hóparnir tveir skiluðu lokatillögum sínum inn til mats í lok október og voru ASK arkitektar í framhaldi valdir til að starfa með verkkaupa að hönnun íþróttamiðstöðvar ÍR. Hægt er að sjá myndir af tillögu ASK á vefsíðu þeirra en þó skal tekið fram þar er um frumtillögur að ræða en ekki endanlegt útlit eða fyrirkomulag byggingarinnar.
Verkkaupi er Byggingarnefnd íþróttamannvirkja í Suður-Mjódd en hún er skipuð fimm fulltrúum ÍR og Reykjavíkurborgar sem standa saman að verkefninu.
Verkefnisstjórn við verkefnið er í höndum VSÓ Ráðgjafar.

|