Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Hallsvegur-Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg

Hallsvegur - Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg (19.01.09)


VSÓ Ráðgjöf hefur nú lokið við gerð frummatsskýrslu vegna mats á umhverfisáhrifum vegna Hallsvegar, Úlfarsfellsvegar og mislægra gatnamóta við Vesturlandsveg.  Matsvinnan hefur verið unnin í samvinnu og undir verkstjórn framkvæmdaraðila sem eru Vegagerðin og Umhverfissvið Reykjavíkurborgar.

Frummatsskýrslan fjallar um umhverfisáhrif nýs kafla Hallsvegar frá Víkurvegi að Hringvegi með brú yfir Korpu (Úlfarsá) og mislægra gatnamóta yfir Vesturlandsveg og Úlfarsfellsveg í beinu framhaldi af Hallsvegi.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að tengja Grafarvogshverfi og hverfi í Hamrahlíðum og Úlfarsárdal við Vesturlandsveg og bæta tengingu hverfanna innbyrðis í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur. Mislæg gatnamót eru talin nauðsynleg til að greiða fyrir umferð inn og út úr hverfunum sitt hvoru megin við Vesturlandsveg og bæta flæði umferðar á Vesturlandsvegi.  Framkvæmdum er ætlað að auka umferðarrýmd gatnanna, þjónustustig og umferðaröryggi.

Helstu neikvæð umhverfisáhrif framkvæmdarinnar samkvæmt matsvinnunni verða á hljóðvist við Úlfarsfellsveg.  Önnur áhrif eru talin veigaminni vegna eðlis þeirra, umfangs og tímalengdar. Í frummatsskýrslu er gerð grein fyrir því hvernig ráðgert er að draga úr líklegum neikvæðum áhrifum. Þar ber helst að nefna áhrif framkvæmdar á hljóðvist við Úlfarsfellsveg, áhrif brúar á fiskgengd og hrygningu og varp fugla.

Skipulagsstofnun hefur samþykkt að auglýsa frummatsskýrsluna þar sem hún er í samræmi við matsáætlun og lög um mat á umhverfisáhrifum. Kynning á frummatsskýrslu og réttur til að skila inn athugasemdum er frá 20. janúar til 4. mars 2009. Athugasemdir eða ábendingar skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar.

Niðurstöður mats á umhverfisáhrifum verða kynntar fimmtudaginn 22. janúar 2009 kl. 20:00 til 21:30, í sal eldri borgara á Korpúlfsstöðum.

Hægt er að nálgast frummatsskýrsluna hér fyrir neðan en jafnframt á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerd.is, og vef Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, www.rvk.is.

 

Frummatsskýrsla: Hallsvegur-Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg

 

Tölvugerð mynd af brú yfir Korpu

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is


Google Analytics