Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Strætó á Suður- og Vesturlandi

Strætó á Suður- og Vesturlandi (12.01.09)


Strætó bs. hóf þann 2. janúar akstur bæði á Suður- og Vesturlandi þ.e.a.s. á milli Reykjavíkur, Hveragerðis og Selfoss annars vegar og Reykjavíkur, Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Borgarness hinsvegar.

Á Suðurlandi verða eknar 11 ferðir á virkum dögum til og frá Selfossi og Hveragerði, 6 ferðir á laugardögum og 5 á sunnudögum.

Á Vesturlandi verða á virkum dögum eknar 8 ferðir til og frá Borgarnesi og 11 til og frá Akranesi, á laugardögum 4 ferðir til og frá Borgarnesi og 7 til og frá Akranesi og á sunnudögum þrjár ferðir til og frá Borgarnesi og fimm til og frá Akranesi.

Markmið með akstrinum er að tengja betur saman höfuðborgarsvæðið og nágrannasveitarfélögin auk þess að auðvelda íbúum að stunda vinnu, nám og sækja þjónustu á milli sveitarfélaganna á þægilegan og hagkvæman hátt.

Áhersla er lögð á fasta notendur og því er töluvert hagstæðara að kaupa kort sem gildir í ákveðinn tíma heldur en stakar ferðir. Einnig fá börn, ungmenni, aldraðir og öryrkjar sérstakan afslátt af fargjaldi. Hinsvegar er vert að minnast á að vagnarnir ganga auðvitað í báðar áttir og því tilvalið einnig fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisisns að nota þá til að skreppa í gammni og kíkja á menninguna fyrir austan eða vestan fjall.

VSÓ Ráðgjöf veitti sveitarfélögunum Selfossi, Hverargerði, Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit ráðgjöf varðandi skipulag og fleira er varðar akstur strætisvagna á Suður- og Vesturlandi.

 

Hægt er að kynna sér ferðir vagnanna nánar á vef Strætó bs. www.straeto.is

Strætó á Suðurlandi

Strætó á Vesturlandi

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is

 

 

 



Google Analytics