Morgunverðarfundur - Landslagsgreining í tengslum við skipulagsvinnu (05.12.08)
Miðvikudaginn 3. desember hélt VSÓ Ráðgjöf fjórða morgunverðarfundinn á þessu ári í tilefni af 50 ára afmæli sínu. Að þessu sinni var kynnt aðferðafræði við landslagsgreiningu í tengslum við skipulagsvinnu sveitarfélaga og við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.
Á fundinum kynnti Rut Kristinsdóttir sviðstjóri á Skipulagsstofnun stefnu og áherslur varðandi landslagsgreiningu í lögum og reglugerðum.
Að því loknu sagði Sebastian Peters frá VSÓ Ráðgjöf frá landslagsgreiningu í tengslum við verkefni um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda við fyrirhugaðan þjóðveg um Hornafjörð og vegna Bitruvirkjunar á Hellisheiði.
Að lokum kynnti Bodil Mortensen aðferðarfræði við landslagsgreiningu sem hefur verið þróuð af Niras A/S í Danmörku fyrir danska umhverfisráðuneytið. Aðferðafræðin auðveldar framsetningu á grunnupplýsingum og mismunandi einkennum lands. Bodil sagði ávinning m.a. vera betri möguleika fyrir almenning til að fylgja eftir ákveðnum gæðum landslags og aðferðafræðina má nýta til skipulags og umsýslu á öllu landrými sveitarfélaga. Hún byggir á auðskiljanlegum og gegnsæjum greiningum á náttúrufari, sjónrænu og hlutlægu mati ásamt stefnumarkandi áætlanavinnu. Aðferðafræðin getur gefið góða yfirsýn og einfaldað ákvarðanatöku um landnotkun.
Fundarstjóri var Stefán Gunnar Thors hjá VSÓ Ráðgjöf.
Fundurinn var afar vel sóttur og kann VSÓ Ráðgjöf gestunum öllum bestu þakkir fyrir komuna og vonar að þeir hafi haft bæði gagn og gaman af. 
Kynningar fundarins:
Hugtakið "Landslag" og regluverkið
Rut Kristinsdóttir, Skipulagsstofnun
Landslagsmat
Sebastian Peters,
VSÓ Ráðgjöf
Landskabsplanlægning i DK
Bodil Mortensen, Niras
|