Verkefni VSÓ kynnt á Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar (11.11.08)
Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar var haldin föstudaginn 7. nóvember síðastliðinn og fluttu starfsmenn VSÓ Ráðgjafar þar þrjú erindi um rannsóknir sem þeir hafa unnið að undanfarna mánuði.
Smári Ólafsson og Lilja Karlsdóttir fjölluðu um háannatímalíkan. Verkefnið er unnið í framhaldi af rannsóknarverkefnum um Nýtt umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins frá árunum 2006 og 2007. Háannatímalíkan mun veita niðurstöður um umferðarmagn á háannatíma á höfuðborgarsvæðinu en það er nýbreytni frá öðrum líkönum sem notuð hafa verið hérlendis þar sem hingað til hefur eingöngu verið stuðst við sólarhringsumferð. Háannatímaumferð er notuð mun víðar en sólarhringsumferð eins og t.d. við mat á afkastagetu gatna, hönnun mannvirkja og ljósastillingar. Gert er ráð fyrir að niðurstöður verkefnisins liggi fyrir snemma á næsta ári.
Sverrir Bollason sagði frá rannsóknum á hjólreiðaáætlunum. Áhugi á hjólreiðum sem samgöngumáta hefur aukist til muna undanfarin misseri auk þess sem Vegagerðin hefur nú fengið lagaheimild til að leggja hjólreiðastíga. Til þess að vel takist til við uppbyggingu samgöngukerfis fyrir hjólreiðar getur reynst vel að kynna sér afrek og mistök frá öðrum löndum. Í erindi sínu lagði Sverrir mesta áherslu á uppbyggingu stefnumótunar og framsetningu áætlana um hjólreiðar. Rannsóknarskýrslan gerir einnig grein fyrir þeim aðferðum sem beitt er til að auka hjólreiðar og öryggi þeirra og auk þess eru veittar upplýsingar um forgangsröðun við uppbyggingu hjólreiðakerfa. Verkefnið hefur þegar vakið mikla athygli meðal forráðamanna sveitarfélaga.
Fríða Björg Eðvarðsdóttir og Sebastian Peters kynntu verkefni VSÓ Ráðgjafar um skilgreiningar ferðamannaleiða og ferðamannavega. Í verkefninu eru skoðuð dæmi um skipulagningu ferðamannavega í Noregi og Þýskalandi auk þess sem tekin eru dæmi um leiðir í uppsveitum Árnessýslu. Kynntar voru tillögur að skilgreiningum fyrir ferðamannaleiðir annars vegar og ferðamannavegi hinsvegar ásamt ávinningi sveitarfélaga, vegagerðar og ferðamanna af ferðammannavegum. Gert er ráð fyrir að niðurstöður verkefnisins verði kynntar í lokaskýrslu sem tilbúin verði í lok ársins.
|