Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Fyrsta skóflustunga tekin að Krikaskóla í Mosfellsbæ

Fyrsta skóflustunga tekin að Krikaskóla í Mosfellsbæ (30.09.08)

Einn af nemendum Krikaskóla tilbúinn með skófluna

Fyrsta skóflustunga að Krikaskóla í Mosfellsbæ, u.þ.b. 200 barna leik- og grunnskóla fyrir börn á aldrinum 1-9 ára, var tekin fimmtudaginn 25. september síðastliðinn.

Skólinn tók til starfa í tímabundnu húsnæði í sumar og það voru því nemendur Krikaskóla sem tóku fyrstu skóflustunguna ásamt Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra, Karli Tómassyni forseta bæjarstjórnar og Herdísi Sigurjónsdóttur formanni fræðslunefndar.

Á síðasta ári var haldin samkeppni meðal hönnuða og skólaráðgjafa um Krikaskóla og var vinningstillagan unnin af hóp sem kallar sig Bræðingur en hópurinn samanstendur af arkitektum, verkfræðingum, landslagsarkitakt, skólaráðgjafa og rithöfundi.

Tillaga Bræðings byggir grunnhugmynd skólans á lýðræðislegum vinnubrögðum, einstaklingsmiðuðu námi og að efla reynslu og virkni barnsins með því að bjóða því upp á raunveruleg verkefni og viðfangsefni.

Mosfellsbær hefur samið við Jáverk um stjórnunarverktöku en Jáverk var lægstbjóðandi í lokuðu útboði þar sem þeim ásamt Eykt, Húsbygg, ÍAV og Ístak gafst kostur á að taka þátt að undangengnu forvali.

Verkefni Jáverks ehf. fellst í jarðvinnu fyrir hús og lóð, uppsteypu og alls ytri frágangs hússins ásamt því að samræma vinnu væntanlegra undirverktaka við alla verkþætti sem þarf til að fullgera hús og lóð.

Einnig hefur Mosfellsbær samið við verkfræðistofuna Hnit um eftirlit með framkvæmdum en Hnit fékk flest stig í almennu útboði þar um.


Fyrsta skóflustunga Krikaskóla

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is