Útboð á akstri fyrir Strætó bs (27.08.08)
Strætó bs. óskar eftir tilboðum í akstur akstur strætisvagna á 19 leiðum byggðasamlagsins Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu og til Akraness á árunum 2010 – 2017. Akstur samkvæmt verkskilmálum hefst 1. janúar 2010. Verkinu er skipt upp í 4 verkhluta og verður að hámarki samið um 3 verkhluta við einn og sama verktaka.
Áætlað er að til alls verksins þurfi 46 strætisvagna af mismunandi stærðum, auk varavagna.
Útboðsgögn verða seld á geisladiski á kr. 15.000, frá og með mánudeginum 25. ágúst 2008 í síma- og upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík.
Kynningarfundur verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 11. september 2008 kl. 14:00.
Tæknilegar upplýsingar og verðtilboð þurfa að berast Ráðhúsi Reykjavíkur ekki síðar en föstudaginn 14. nóvember 2008 kl. 10:00
Tilkynning um hæfi bjóðenda og opnun verðtilboða verður mánudaginn 1. desember kl. 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

|