Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit - útboð á hönnun (14.07.08)
Hvalfjarðarsveit óskar eftir áhugasömum ráðgjöfum til að taka þátt í útboði á hönnun vegna uppbyggingar skólahúsnæðis við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.
Óskað er eftir umsóknum frá hönnunarhópum sem samanstanda af arkitektum, landslagsarkitektum og verkfræðihönnuðum. Við uppbyggingu á Heiðarskóla kemur annars vegar til greina að byggja alfarið nýtt skólahúsnæði og hins vegar að endurbæta eldra húsnæði og byggja við það.
Verkefni ráðgjafa verður að annast alla hönnun og undirbúning hennar allt frá frumhönnun og þangað til endurbætt skólahúsnæði er tilbúið til notkunar. Gert er ráð fyrir að nýtt/endurbætt húsnæði verði tekið í notkun í upphafi skólaárs 2010-2011.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 15. júlí hjá VSÓ Ráðgjöf, Borgartúni 20. Einnig er hægt að óska eftir þeim á rafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið vso@vso.is.
Kynningarfundur vegna verkefnisins verður haldinn í Heiðarskóla þann 11. ágúst kl. 14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofur Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eigi síðar en fimmtudaginn 21. ágúst 2008 kl. 14:00.

|