Stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari nýting jarðhitavökva (11.06.08)
Tillaga að matsáætlun fyrir stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari nýtingu jarðhitavökva er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun. Framkvæmdaraðili er Hitaveita Suðurnesja og annast VSÓ Ráðgjöf verkstjórn mats á umhverfisáhrifum í samráði við þá.
Í matsáætlun er gerð grein fyrir:
- Fyrirhuguðum framkvæmdum
- Umhverfisþáttum sem fjallað verður um í frummatsskýrslu
- Umfjöllunarefni frummatsskýrslu og rannsóknum sem ráðast á í vegna mats á umhverfisáhrifum

Tillagan liggur frammi til kynningar frá 10. júní - 27. júní 2008 hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 27. júní 2008 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Tillaga að matsáætlun
Yfirlitskort
Borholur
|