Viðbygging Fjölbrautaskólans við Ármúla (27.05.08)

Fimmtudaginn 22. maí 2008 tóku menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, og borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon, fyrstu skóflustungu að viðbyggingu við Fjölbrautaskólann í Ármúla. Við sama tilefni var skrifað undir samstarfssamning á milli Menntamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um bygginguna.
Byggt verður við núverandi skóla á tveimur stöðum. Annars vegar er gert ráð fyrir fjölnotasal sunnan við núverandi byggingu og L- laga byggingu sem tengist vesturhlið núverandi byggingar og mun annars vegar hýsa stjórnunarálmu (kennarastofur) og hins vegar kennsluálmu. L-byggingin tengist einnig vesturhluta fjölnotasalarins. Í kennsluálmu verður m.a. aðstaða fyrir fjölfatlaða með stoðrýmum, þ.m.t. sundlaug. Einnig verða þar ýmisskonar kennslustofur og líkamsræktarsalur með tilheyrandi stoðrýmum.
Auk nýbyggingar verða nokkrar breytingar gerðar á eldra húsnæði s.s. komið fyrir lyftu, sett upp eldhús fyrir fjölnotasal, bætt við salernum o.fl., ásamt margvíslegri aðlögun húsnæðisins vegna nýbyggingarinnar.
Hönnuðir viðbyggingarinnar eru Á stofunni arkitektar og Skapa og Skerpa arkitektar, verktakafyrirtækið Spöng ehf. sér um að byggja og VSÓ Ráðgjöf sinnir verkefnisstjórn og eftirliti í samvinnu við Framkvæmdasýslu Ríkisins.
Áætlað er að byggingarframkvæmdum muni ljúka sumarið 2011.

|