Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Morgunverðarfundur, þarfnast náttúruverndarlögin endurskoðunar?

Morgunverðarfundur – Þarfnast náttúruverndarlögin endurskoðunar? (20.05.08)


Þriðjudaginn 20. apríl bauð VSÓ, í tilefni af 50 ára afmæli sínu, til morgunverðarfundar á Grand Hótel þar sem fjallað var um 37. gr. náttúruverndarlaga en VSÓ Ráðgjöf hefur nýlokið rannsókn á vægi þessarar lagagreinar í matsverkefnum og áhrifum hennar á ákvarðanir um matsskyldu, úrskurði í mati á umhverfisáhrifum, útfærslu framkvæmda og skilgreiningu mótvægisaðgerða.

Sigrún Ágústsdóttir, lögfræðingur hjá Umhverfisráðuneytinu, fjallaði um forsögu, forsendur og stöðu 37. gr. náttúruverndarlaga í lagakerfinu.

Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands, fjallaði um hugmyndafræði og náttúruvernd og hvernig afstaða okkar til náttúruverndar og friðunar birtist í hugmyndafræði samtímans.

Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf, fjallaði um niðurstöður rannsóknar á áhrifum 37. gr. náttúruverndarlaga á framkvæmdir sem fram fóru veturinn 2007 – 2008.

Mjög góð mæting var á morgunverðarfundinn og voru þar samankomnir góðir gestir úr ýmsum áttum. VSÓ Ráðgjöf kann gestunum öllum bestu þakkir fyrir komuna og vonar að þeir hafi haft bæði gagn og gaman af.

Kynningar fundarins:


Vernd jarðmyndana og vistkerfa - Forsendur 37. greinar náttúruverndarlaga og staða í lagakerfinu
Sigrún Ágústsdóttir, lögfræðingur hjá Umhverfisráðuneytinu

Friðun og verndun og 37. grein náttúruverndarlaga
Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands

Hefur 37. grein náttúruverndarlaga tilætluð áhrif?
Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf

 

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is