VSÓ Ráðgjöf á toppnum (19.05.08)

Þrettán manns, þar af tíu starfsmenn af Umhverfissviði VSÓ Ráðgjafar, gengu á Hvannadalshnjúk þann 16. maí síðastliðinn í fylgd Íslenskra Fjallaleiðsögumanna. Göngustjóri ferðarinnar var Leifur Örn Svavarsson, fjallaleiðsögumaður.
Lagt var af stað frá bílastæðinu við Sandfell um kl 5:30 að morgni dags þann 16. maí og gengin Sandfellsleið, í þoku og lélegu skyggni en ágætu færi. Toppnum var náð síðar sama dag þ.e. kl: 14:30, eftir langa og stranga göngu.
Komið var niður af jöklinum aftur eftir 13,5 tíma göngu og hafði ánægt en þreytt göngufólkið það á orði að næst yrði gengið á Hvannadalshnjúk í góðu skyggni þegar vænta mætti góðs úsýnis af tindinum.
Eftirfarandi aðilar náðu hátindi:
Auður Magnúsdóttir
Einar Kristján Stefánsson
Fríða Björg Eðvarðsdóttir
Frosti Gunnarsson
Guðrún Guðgeirsdóttir
Hjördís Arnardóttir
Hrefna Fanney Matthíasdóttir
Ingigerður Erlingsdóttir
Jón Þór Sigurðsson
Sebastian Peters
Sigríður Droplaug Jónsdóttir
Styrmir Frostason
Yrsa Guðrún
og Leifur Örn Svavarsson, leiðsögumaður

|