Breytingar á aðal- og deiliskipulagi í Sandgerði (15.05.08)
VSÓ Ráðgjöf og Kanon arkitektar hafa gengið frá tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sandgerðisbæjar ásamt því að útfæra tillögur fyrir hátæknigarð í Rockville og fyrir íbúðarsvæði austan Stafnesvegar í samráði við húsnæðis-, byggingar- og skipulagsráð Sandgerðisbæjar. Tillögurnar eru til sýnis á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar og í sýningarsal Skipulagsstofnunar til föstudagsins 13. júní nk. Í auglýsingu kemur fram að frestur til að skila athugasemdum er til og með föstudeginum 27. júní 2008 og á að skila athugasemdum í Vörðuna, Miðnestorgi 3 í Sandgerði.
Tillaga breytingar á Aðalskipulagi Sandgerðisbæjar 1997-2017
Í breytingunni felst að fyrrum varnarsvæði eru tekin í borgaraleg not og hluti þeirrar landnotkunar sem felld var út með aðalskipulagsbreytingu árið 2006 innleidd að nýju. Jafnframt hefur Sandgerði auglýst til kynningar deiliskipulagstillögu að nýju íbúðarsvæði í Sandgerðisbæ sem samþykkt var í húsnæðis–, byggingar- og skipulagsráði Sandgerðisbæjar þann 6. maí s.l. og deiliskipulagstillöu fyrir hátæknigarð í Rockville sem samþykkt var 23. apríl sl., að auglýsa samhliða aðalskipulagstillögu, tillögurnar eru auglýstar skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Deiliskipulagstillaga hátæknigarðs í Rockville
Um er að ræða 53 ha stórt landssvæði og er gert ráð fyrir 36 misstórum atvinnulóðum undir uppbyggingu hátækniiðnaðar og athafnastarfsemi, auk lóða fyrir verslun og þjónustu. Stærð lóða er allt frá 0,25 ha í 5,9 ha. Eiginleika svæðisins sem opið heiðalandslags er viðhaldið með því að halda óbyggðum svæðum á milli lóða. Skipulagning atvinnusvæðis á Rockvillesvæðinu eru í samræmi við óskir atvinnuráðs Sandgerðisbæjar um uppbyggingu hátækniþorps.
Deiliskipulagstillaga íbúðarsvæðis sunnan Sandgerðisvegar og austan Stafnesvegar
Umrætt svæði er sunnan fyrirhugaðs Sandgerðisvegar og austan Stafnesvegar. Austan íbúðarsvæðis eru Draugaskörð. Tillagan er í samræmi við skipulagsáherslur gildandi aðalskipulagi. Um er að ræða íbúðarsvæði með leikskóla og samfelldu opnu útivistarsvæði. Íbúðarbyggðin skiptist í tvo hluta, þann nyrðri og syðri og liggur útivistarsvæðið þar á milli. Aðkomur að hverfinu verða að norðan, um nýja safngötu sem liggja mun til suðurs frá fyrirhuguðum Sandgerðisvegi og að vestan verða tvær aðkomur að hverfinu frá Stafnesvegi. Safngata liggur í gegnum hvorn hluta hverfisins og er ekki gert ráð fyrir umferð bíla þar á milli.
Fjöldi íbúða er 273, með einnar til tveggja hæða byggð fjölbreyttra íbúðargerða og áherslu á sérbýli.
|