Stækkun Reykjanesvirkjunar - Drög að tillögu um matsáætlun (18.04.08)
VSÓ Ráðgjöf hefur unnið drög að tillögu um matsáætlun vegna áforma Hitaveitu Suðurnesja um stækkun Reykjanesvirkjunar. Í drögunum er m.a. gerð grein fyrir fyrirhugðum framkvæmdum, umhverfisþáttum sem fjallað verður um í frummatsskýrslu og rannsóknum sem ráðast á í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Drögin eru aðgengileg hér á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar og á heimasíðu Hitaveitu Suðurnesja, www.hs.is.
Hægt er að senda ábendingar og athugasemdir um drögin á netfangið bjornh@vso.is og audur@vso.is. Frestur til að senda inn ábendingar er til 10. maí næstkomandi.
Drög að tillögu um matsáætlun
Kort

|