Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Rannsóknarskýrsla um áhrif náttúruverndarlaga á framkvæmdir

Rannsóknarskýrsla um áhrif náttúruverndarlaga á framkvæmdir (18.04.08)


VSÓ Ráðgjöf hefur lokið við gerð rannsóknarskýrslu á áhrifum 37. gr. náttúruverndarlaga nr. 44/1999 á framkvæmdir. Samkvæmt þessari lagagrein kemur fram að ákveðnar skilgreindar jarðmyndanir og vistkerfi njóti sérstakrar verndar og forðast skuli röskun þeirra eins og kostur er.

Á undanförnum árum hefur umfjöllun aukist í matsskýrslum og matsferlinu um 37. gr. náttúruverndarlaga. Vægi umfjöllunar er jafnframt að aukast. Hins vegar var ekki ljóst hver afleiðing þessarar auknu umfjöllunar væri, hvorki m.t.t. útfærslu framkvæmda né landslags- og vistkerfisverndar. Einnig ríkti ákveðin óvissa um samræmi umfjöllunar í matsferlinu milli ólíkra framkvæmda. Í ljósi þessa þótti fróðlegt að skoða hvernig úrskurðað hefur verið í tengslum við 37. gr. náttúruverndarlaga í mati á umhverfisáhrifum á tímabilinu 1996 til 2006.

Tilgangur rannsóknarinnar var að skýra frá vægi 37. gr. í matsverkefnum, áhrifum hennar á ákvarðanir um framkvæmdir, að svara hverju lagaákvæði um landslagsvernd hafa skilað og bera saman umfang og eðli umfjöllunar hér á landi og erlendis í tengslum við landslagsvernd.

Rannsóknin var að hluta unnin fyrir fé úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Samráðshópur sem skipaður var fulltrúum Umhverfisstofnunar, Skipulagsstofnunar og Vegagerðarinnar kom einnig að mótun verkefnisins. Höfundar skýrslunnar eru Auður Magnúsdóttir og Sigríður D. Jónsdóttir. Skýrsluna má nálgast hér heimasíðu VSÓ og á heimasíðu Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is

 

Áhrif 37. gr. náttúruverndarlaga nr. 44/1999 á framkvæmdir

 


Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is