Ponnukökudagurinn (17.04.08)
Þann 11. apríl síðastliðinn var Stóri-Pönnukökudagurinn haldinn hátíðlegur hjá VSÓ Ráðgjöf. Tóku þá nokkrir vaskir kappar sig til og bökuðu pönnsur handa starfsfólki og öðrum viðstöddum.
Boðið var upp á ýmsar gómsætar gerðir pönnukaka, bæði gerðar með gömlu góðu uppskriftinni hennar ömmu ásamt öðrum og nýstárlegri uppskriftum. Pönnuunkokurnar voru svo vitaskuld bragðbættar með ýmiskonar sultutaui, rjóma, sykri eða vanilluís - allt eftir smekk hvers og eins.
Stóri-Pönnukökudagurinn vakti afar mikla lukku meðal viðstaddra og borðuðust pönnsur í tugavís við þetta tækifæri.

|