Morgunverðarfundur - Samningskaup og „partnering” (09.04.08)
Þriðjudaginn 8. apríl bauð VSÓ, í tilefni af 50 ára afmæli sínu, til morgunverðarfundar á Grand Hótel þar sem fjallað var um samningskaup og „partnering” - tvær nýjar aðferðir til að leysa flókin verkefni í samstarfi verktaka og verkkaupa.
Anders Kirk Christoffersen, verkfræðingur hjá NIRAS í Danmörku, fjallaði um reynslu þeirra af „partnering” aðferðinni og þann lærdóm sem draga má af henni en NIRAS hefur tekið þátt í fjölda verkefna þar sem þessi leið var farin m.a. í tengslum við nýbyggingu danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio.
Helgi S.Gunnarsson, framkvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Portus ehf., fjallaði um samningskaup og reynslu þeirra af þeirri aðferð en Portus vinnur að byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn, verkefni sem fyrirtækið hreppti að undangengu samningskaupaútboði á vegum ríkisins og Reykjavíkurborgar. Félagið fjármagnar, hannar, byggir og rekur mannvirkið og alla starfsemi í húsinu næstu áratugi.
Afar góð mæting var á morgunverðarfundinn og voru þar samankomnir góðir gestir úr ýmsum áttum. VSÓ Ráðgjöf kann gestunum öllum bestu þakkir fyrir komuna og vonar að þeir hafi haft bæði gagn og gaman af.
Kynningar fundarins:
Session in partnering
Anders Kirk Christoffersen, verkfræðingur hjá NIRAS
Samningskaup
Helgi S. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Portus ehf.

|