Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Morgunverðarfundur, samningskaup og "partnering"

Morgunverðarfundur - Samningskaup og „partnering” (04.04.08)


Í tilefni af 50 ára afmæli VSÓ Ráðgjafar býður fyrirtækið til morgunverðarfundar þriðjudaginn 8. apríl kl. 8:30-10:00 í Háteigi A á Grand Hótel, Reykjavík.

Undanfarin ár hafa nýjar aðferðir verið reyndar til að leysa flókin verkefni í samstarfi verktaka og verkkaupa. Á fundinum verður fjallað um tvær þeirra, samningskaup og „partnering”.

Danska verkfræðifyrirtækið NIRAS hefur tekið þátt í fjölda verkefna þar sem partnering aðferðin hefur verið reynd með misgóðum árangri. Fjallað verður um reynslu NIRAS af þessari aðferð og lærdóma sem draga má af henni. Meðal annars kom NIRAS að nýbyggingu danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio.

Eignarhaldsfélagið Portus hf. vinnur nú að byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn, verkefni sem fyrirtækið hreppti að undangengu samningskaupaútboði á vegum ríkisins og Reykjavíkurborgar. Félagið fjármagnar, hannar, byggir og rekur mannvirkið og alla starfsemi í húsinu næstu áratugi. Gerð verður grein fyrir samningskaupaaðferðinni og reynslu félagsins af henni allt frá útboði til dagsins í dag.

Dagskrá:

  • Partnering – hvað þarf til að aðferðin heppnist, Anders Kirk Christoffersen verkfræðingur.
  • Samningskaup – lærdómur af byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík, Helgi S. Gunnarsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins Portus hf.
  • Umræður, spurningar og svör.

Fundarstjóri: Grímur M. Jónasson, framkvæmdastjóri VSÓ Ráðgjafar.

Fundurinn er ætlaður fjárfestum, verktökum, verkkaupum, ráðgjöfum, opinberum aðilum og öðrum þeim sem standa að stórum og flóknum byggingaframkvæmdum.

Aðgangur er í boði VSÓ.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 7. apríl n.k. með því að senda póst á Bergnýju H. Steinsdóttur hjá VSÓ.


Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is