Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Styrkir úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar

Styrkir úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar 2008 (26.03.08)

 

Vegagerðin hefur lokið úthlutun styrkja úr rannsóknarsjóði til verkefna ársins 2008. Umsóknir um tilraunafé 2008 voru 149 talsins og var sótt um samtals 299 milljónir. Sjóðurinn hafði hins vegar 119 milljónir til ráðstöfunar.

VSÓ Ráðgjöf hlaut styrk til sex verkefna og það sjöunda í samstarfi við lmennu Verkfræðistofuna. VSÓ Ráðgjöf hefur að undanförnum árum unnið að mörgum rannsóknarverkefnum, sem oft hafa leitt af sér mikilvægar og áhugaverðar niðurstöður. Starfsmenn VSÓ þakka rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar kærlega fyrir styrkveitingarnar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Verkefnin sem VSÓ Ráðgjöf hlaut styrk til eru eftirfarandi:

Verkefnið Spálíkan SV horsins hlaut 2.000.000 króna styrk en verkefnið felst í stækkun spálíkans höfuðborgarsvæðisins þannig að það nái yfir SV horn landsins, þ.m.t. Selfoss, Borgarnes og Reykjanesbæ. Verkefnistjóri í þessu verkefni er Smári Ólafsson hjá VSÓ en auk hans eru í verkefnahópnum Ingigerður Erlingsdóttir VSÓ, Auður Þóra Árnadóttir Vegagerðinni, Erna Bára Hreinsdóttir Vegagerðinni og Haraldur Sigurðsson Skipulags og byggingarsviði Reykjavíkurborgar.

Verkefnið Háannatímalíkan 2007 hlaut 1.500.000 kr en styrkveitingin miðast við mótframlag t.d. frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið felst í gerð háannatímalíkans fyrir háannatíma seinniparts. Verkefnisstjóri er Smári Ólafsson hjá VSÓ en auk hans eru í verkefnahópnum Ingigerður Erlingsdóttir VSÓ, Stefán Agnar Finnsson og Björg Helgadóttir frá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, Auður Þóra Árnadóttir Vegagerðinni, og Haraldur Sigurðsson Skipulags og byggingarsviði Reykjavíkur.

Verkefnið Ferðamannavegur-ferðamannaleiðir – skilgreining hlaut 1.500.000 kr styrk. Verkefnið felst í athugun hvort og hvernig skilgreina eigi suma landsvegi/tengivegi sem ferðamannaleiðir. Greint verður frá erlendum fyrirmyndum t.d. í Noregi og Bandaríkjunum. Tekin verða dæmi í uppsveitum Árnessýslu og skoðað hvaða atriði er helst að hafa til viðmiðunar ef leið er skilgreind sem ferðamannaleið. Verkefnisstjóri er Fríða Björg Eðvarðsdóttir hjá VSÓ en auk hennar eru í verkefnahópnum Smári Johnsen VSÓ, Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu, Eymundur Runólfsson og Svanur G. Bjarnason Vegagerðinni.

Verkefnið Val á ferðamáta - viðhorfskönnun er í mótun sem samvinnuverkefni VSÓ og Almennu verkfræðistofunnar en frá VSÓ verður Smári Ólafsson verkefnisstjóri og mun VSÓ sjá þar um umferðarspár, hermun og arðsemisgreiningu á seinni stigum verksins. Verkefnið felst í greiningu á ferðavenjum og þeim þáttum sem líklegir eru til að hafa áhrif á ferðavenjur. Ekki er komið í ljós hversu stór styrkveiting verður í þessu verkefni en gert er ráð fyrir mótframlagi Reykjavíkurborgar.

Verkefnið Hjólastígur- stofnbraut, forsendur stofnkerfis hlaut 1.000.000 kr. styrk. Verkefnið felst í að fá heildaryfirlit yfir hvaða markmið, skipulagsbreytingar og aðgerðir hafa skilað árangri og verið árangursrík til að auka umferð hjólandi. Verkefnisstjóri er Sverrir Bollason hjá VSÓ en auk hans eru í verkefnahópnum Fríða Björg Eðvarðsdóttir VSÓ, Guðmundur Hrafn Arngrímsson VSÓ , Pálmi Freyr Randversson frá Reykjavíkurborg og Krístín Björg Þorsteinsdóttir frá Umferðarráði.

Verkefnið Sandfok á Hringveginum hlaut 1.000.000 króna styrk. Verkefnið felst í vinnslu yfirlits yfir þau svæði á landinu þar sem sandfok á Hringveginn getur ógnað umferðaröryggi. Þessi svæði verða staðsett svo unnt sé að setja þau inn á landupplýsingakerfi og einnig verður greint við hvaða aðstæður megi helst búast við því að sandur fjúki á vegi og farartæki. Verkefnisstjóri er Björn H. Barkarson hjá VSÓ en auk hans eru í verkefnahópnum Sigríður Dr. Jónsdóttir VSÓ, Fanney Ósk Gísladóttir Landbúnaðaháskóla Íslands, Magnús Björnsson Vegagerðinni og Svanur G. Bjarnason Vegagerðinni.

Verkefnið Umferðarstjórnun hlaut 800.000 króna styrk. Verkefnið felst í úttekt og greiningu á umferðarstjórnun sem leið til betri nýtingar samgöngumannvirkja m.t.t. kostnaðar (mannvirki, landnýting, tími, eldsneyti o.s.frv.) og viðleitni til að draga úr mengun og töfum á álagstímum. Greint verður í hverju umferðarstjórnun felst og hvernig slík nálgun hefur reynst á meðalstórum borgarsvæðum erlendis. Verkefnisstjóri er Smári Johnsen hjá VSÓ en auk hans eru Gréta Hlín Sveinsdóttir VSÓ og Smári Ólafsson VSÓ í verkefnahópnum.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is