Umhirða trjá- og runnabeða með Umhiðrustjóranum (18.03.08)
Þeir sem sjá um umhirðu trjá- og runnabeða, s.s sveitarfélög og fleiri aðilar, þekkja nauðsyn þess að svæðin standist þær umhirðu og útlitskröfur sem gerðar eru til þeirra. VSÓ Ráðgjöf og ICEconsult hafa í samstarfi við garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar þróað nýja stjóralausn (Umhirðustjórann) sem hjálpartæki við umhirðu slíkra beða.

Markmiðið með umhirðustjóranum er að byggja upp sameiginlegt áætlanakerfi með samræmdu skráningarformi og aðgangsstýrðri netvistun. Með stjóranum eru sendar út rafrænar verkbeiðnir varðandi þær aðgerðir sem framkvæma þarf hverju sinni. Með þessu móti er saga hvers trjá- eða runnabeðs skráð í stjórann og með tímanum verður til gagnabanki með greinargóðum upplýsingum sem auðvelt er að leita eftir og sækja í. Með aukinni skipulagningu á umhirðu grænna svæða næst betri yfirsýn yfir svæðin, innihald þeirra, verkefnistök og verkþætti, verkstýring verður markvissari og mannauðsnýting betri.
VSÓ Ráðgjöf hefur yfir að ráða sérfræðingum sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á umhirðu grænna svæða. Þjónusta VSÓ Ráðgjafar felst m.a. í kortlagningu leiksvæðanna og gerð gátlista fyrir hvert svæði en einnig að veita ráðgjöf varðandi frávik sem upp koma s.s. tillögur að úrbótum, hönnun, kostnaðarmat, verklýsingar og þjónustubeiðnir. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Droplaug Jónsdóttir, hjá VSÓ Ráðgjöf.
Sjá einnig www.iceconsult.is
|