Bakkafjöruhöfn og tengdar framkvæmdir - Frummatsskýrsla (18.03.08)
VSÓ Ráðgjöf hefur lokið gerð frummatsskýrslu vegna Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Seljalandsheiði. Framkvæmdirnar sem um ræðir eru bygging ferjuhafnar á Landeyjasandi skammt vestan ósa Markarfljóts, gerð vegtengingar frá Hringvegi að Bakkafjöruhöfn og grjótnám í nýrri námu á Seljalandsheiði ásamt uppbyggingu vegslóða að grjótnámi. Framkvæmdaraðilar eru Siglingastofnun og Vegagerðin.
Fjallað er um þrjá valkosti vegtengingar, nýjan 11,8 km langan veg á vesturbakka Markarfljóts, s.k. Bakkafjöruveg, og tvær leiðir nýrrar vegtengingar frá núverandi vegi að Bakkaflugvelli að höfninni. Vegagerðin mælir með Bakkafjöruvegi umfram aðrar leiðir og ræður umferðaröryggi þar mestu um.
Ferja sem siglir á milli Bakkafjöruhafnar og Vestmannaeyja styttir ferðatíma á sjó verulega auk þess sem ferðatíðni ferju milli lands og Eyja eykst úr tveimur ferðum á dag í þrjár til sex ferðir á dag. Framkvæmdirnar eru taldar hafa talsverð jákvæð áhrif á samfélag og samgöngur, einkum fyrir Vestmannaeyjar. Neikvæð áhrif framkvæmdanna á umhverfið eru óveruleg til talsverð. Þeir umhverfisþættir sem verða fyrir mestum neikvæðum áhrifum eru fuglalíf og landslag, þó mismikið eftir leiðum.
Skipulagsstofnun hefur samþykkt að auglýsa frummatsskýrslu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Seljalandsheiði þar sem hún er í samræmi við matsáætlun og lög um mat á umhverfisáhrifum. Frummatsskýrslan mun liggja frammi til kynningar frá 26. mars til 8. maí 2008 á skrifstofum sveitarfélaganna Rangárþings eystra og Vestmannaeyjabæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Einnig verður hægt að nálgast matsskýrslu hér á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar ásamt heimasíðum Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar . Frestur almennings til að skila athugasemdum við matsskýrsluna er til 8. maí 2008. Athugasemdir eða ábendingar, skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar með bréfi, símbréfi eða tölvupósti.
Bakkafjöruhöfn, Bakkafjöruvegur og grjótnám á Seljalandsheiði - Frummatsskýrsla
|