Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Morgunverðarfundur, hugmyndafræði, hönnun og bygging nýs barnaskóla

Morgunverðarfundur - Hugmyndafræði, hönnun og bygging nýs barnaskóla (10.03.08)


Í tilefni 50 ára afmælis VSÓ Ráðgjafar býður fyrirtækið til morgunverðarfundar miðvikudaginn 12. mars kl. 8:30 í Gullteig A á Grand Hótel. Á fundinum verður fjallað um hvernig sveitarfélög geta sótt ferskar hugmyndir til skólafólks og hönnuða úti í samfélaginu um byggingu nýrra skóla.

Í Mosfellsbæ ríkir metnaðarfull og framsækin stefna í skólamálum og skólastarfi. Bæjarstjórnin ákvað að sækja nýjustu hugmyndir um uppbyggingu nýs skóla fyrir 1 til 9 ára börn með athyglisverðri samkeppni. Með þessari nútímaaðferð verður nýjum leik- og grunnskóla blandað saman.

Efnt var til samkeppni meðal hönnuða og skólaráðgjafa um nýja skólann. Tvær athyglisverðar nýjungar í samkeppninni verða kynntar:

  • Sagt verður frá samkeppni þar sem verkkaupi og keppendur áttu gagnkvæm samskipti á keppnistímanum
  • Greint verður frá samstarfi skólaráðgjafa í hugmyndafræði, kennlsu og uppeldismálum, akritekta og verkfræðinga sem unnu saman í einum hóp þar sem hugmyndafræðin hafði sama vægi og arkitektúrinn.


Um þessa nýju aðferðarfræði, sem skilaði mjög jákvæðum árangri, verður fjallað á afmælisfundi VSÓ Ráðgjafar.

 

Dagskrá

  • Aðferðarfræði samkeppninnar. Þorbergur Karlsson, verkfræðingur hjá VSÓ
  • Athyglisverð uppbygging skóla í Mosfellsbæ. Jóhanna Björg Hansen, bæjarverkfræðingur
  • Að bræða saman hugmyndafræði, arkitektúr og verkfræði. Helgi Grímsson, skólastjóri Sjálandsskóla og Steffan Iwersen arkitekt
  • Umræður, spurningar og svör

 

Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum, fræðslustjórum, fræðslunefndarfólki, arkitektum, verk- og tæknifræðingum ásamt öðru áhugafólki um skólamál.

 

Aðgangur er í boði VSÓ.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 11. mars n.k. með því að senda póst á Bergnýju H. Steinsdóttur hjá VSÓ.


Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is