Öskudagur hjá VSÓ Ráðgjöf (06.02.08)
Í tilefni af Öskudeginum mætti starfsfólk Umhverfissviðs VSÓ Ráðgjafar í grímubúningum í vinnuna í dag. Í stað skipulagsfræðinga, landslagsarkitekta, samgögufræðinga, byggingaverkfræðinga, umhverfisfræðinga og annara fræðinga komu því til vinnu læknar, hjúkrunarkona, jólasveinn, Sherlock Holmes, Lína Langsokkur, Zorro, blóm, sjóræningi, kisur, Bubbi Morthens og fleiri furðuverur.
Þrátt fyrir að sælgæti hafi í dag staðið grímuklæddum til boða í móttöku VSÓ hefur þessi grímuklæddi starfsmannahópur þó ekkert nammi fengið þar sem starfsmenn eru allir í ströngu aðhaldi fyrir ásrhátið fyrirtækisins í maí...

|