Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Hringvegur um Hornafjörð, frummatsskýrsla

Hringvegur um Hornafjörð - Frummatsskýrsla (23.01.08)


VSÓ Ráðgjöf hefur nú lokið frummatsskýrslu Hringvegar um Hornafjörð. Skýrslan var unnin undir verkstjórn Vegagerðarinnar en fjölmargir aðilar með sérþekkingu á mismunandi verkþáttum komu einnig að verkinu.

Framkvæmdin sem hér um ræðir er 11-18 km löng veglagning, háð veglínum og nær frá bænum Lambleiksstöðum, yfir Hornafjarðarfljót á nýju brúarstæði og að Hringvegi við bæinn Haga skammt austan Hafnarvegar sem liggur að Höfn í Hornafirði. Framkvæmdaraðili er Vegagerðin og leggur hún fram þrjár veglínur til skoðunar í mati á umhverfisáhrifum, leið 1, leið 2 og leið 3 en einnig eru metin áhrif samsettra leiða.

Framkvæmdin styttir Hringveginn um 11-12 km eftir því hvaða veglína er valin. Allur undirbúningur miðast við að framkvæmdir geti hafist árið 2008. Áhrif framkvæmdarinnar eru mismunandi eftir leiðum, minnst á bilinu óveruleg til talsverð en mest á bilinu talsverð til veruleg. Þeir umhverfisþættir sem verða fyrir mestum neikvæðum áhrifum, þó mismikið eftir leiðum, eru gróðurfar, fuglalíf, fornminjar og landslag. Umferðaröryggi verður fyrir verulegum jákvæðum áhrifum sama hvaða leið er valin.

Vegagerðin mælir með leið 1 umfram aðrar leiðir og ráða þar umhverfisáhrif mestu um, leiðin uppfyllir einnig öll markmið um umferðaröryggi og greiðfærni auk þess sem hún er verulega hagkvæmari en aðrar leiðir.

Skipulagsstofnun hefur samþykkt að auglýsa frummatsskýrslu Hringvegar um Hornafjörð þar sem hún er í samræmi við matsáætlun og lög um mat á umhverfisáhrifum. Frummatsskýrslan mun liggja frammi til kynningar frá 24. janúar til 7. mars 2006 á skrifstofum sveitarfélagsins Hornafjarðar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Einnig verður hægt að nálgast matsskýrslu á heimasíðu Vegagerðarinnar (www.vegagerdin.is) og á heimasíðu VSÓ Ráðgjafar. Frestur almennings til að skila athugasemdum við matsskýrsluna er til 7. mars 2008. Athugasemdir eða ábendingar, skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar með bréfi, símbréfi eða tölvupósti.

Frummatsskýrsla

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is