Hallsvegur og Úlfarsfellsvegur - Tillaga að matsáætlun (04.01.08)
Skipulagsstofnun hefur tekið til auglýsingar tillögu að matsáætlun vegna Hallsvegar, Úlfarsfellsvegar og gatnamóta við Vesturlandsveg sem Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðin standa að.
Matsáætlun er ætlað að vera leiðarvísir fyrir mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Þar kemur fram hvaða áhrif framkvæmdarinnar eru kortlögð og hvaða þættir í umhverfinu skuli metnir. Skipulagsstofnun tekur ákvörðun um hvort framlögð tillaga sé ásættanleg eða hvort breyta þurfi efnistökum í væntanlegri skýrslu um mat á umhverfisáhrifum.
Athugasemdafrestur er til 18. janúar n.k. og skulu athugasemdir berast skriflega til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Tillaga að matsáætlun
|