Vegir og skipulag - Leiðbeiningarit (04.12.07)
Gefið hefur verið út leiðbeiningarrit Vegagerðarinnar fyrir sveitarfélög og skipulagshönnuði. Leiðbeiningarnar taka á samspili skipulags og samgöngumannvirkja á forræði Vegagerðarinnar og verður dreift til allra sveitarfélaga á landinu. 
Árið 2007 fékkst styrkur frá Rannsóknarráði Vegagerðarinnar til að vinna leiðbeiningarrit fyrir sveitarfélög og skipulagshönnuði. Verkefnið var unnið af VSÓ Ráðgjöf í samvinnu við Vegagerðina. Að verkefninu komu Smári Johnsen, skipulagsfræðingur SFFÍ, hjá VSÓ Ráðgjöf, Erna Bára Hreinsdóttir og Matthildur B. Stefánsdóttir hjá Vegagerðinni.
Leiðbeiningarnar taka á samspili skipulags og samgöngumannvirkja á forræði Vegagerðarinnar. Safnað var saman stoðgögnum s.s. lögum, reglugerðum og ýmsum vinnuleiðbeiningum sem nauðsynlegt er að hafa til hliðsjónar í skipulagsvinnu. Meginatriði sem huga þarf að samkvæmt lögum og reglugerðum eru dregin fram og flokkuð m.t.t. skipulagsstiganna þriggja. Fjallað er um gildi og nauðsyn samráðs, eðlilega málsmeðferð ásamt hlutverki og ábyrgð sveitarfélaga og Vegagerðarinnar í svokölluðu fyrirmyndarvinnulagi.
Í skipulagsvinnu þarf oft að taka tillit til samgöngumannvirkja á ábyrgð Vegagerðarinnar sem liggja um eða við skipulagssvæðið. Gera þarf ráð fyrir nægilegu rými svo samgöngumannvirki uppfylli kröfur um ásættanlegt þjónustustig, hljóðvist, sýnileika og umferðaröryggi. Með leiðbeiningarriti fyrir skipulagshöfunda leggur Vegagerðin sitt af mörkum til að stuðla að skilvirku samráðsferli. Einnig er með því leitast við að lágmarka óvissu um ábyrgð og skyldur aðila. Skipulagshöfundar geta þar með undirbúið mál sitt og Vegagerðin veit að hverju hún gengur og getur gert athugasemdir og sett fram óskir um útfærslur byggðar á skýrum grunni.
Vegir og skipulag - Leiðbeiningar Vegagerðarinnar fyrir sveitarfélög og skipulagshöfunda
Vegagerðin - Upplýsingar og útgáfa
|