Nýtt verkfæri - Stjóralausn fyrir leiksvæði (21.11.07)
Þeir sem hafa mörg leiksvæði á sínum snærum, s.s. sveitarfélög og fleiri aðilar, þekkja nauðsyn þess að svæðin standist ávallt ströngustu gæðakröfur. ICEconsult er nú í samstarfi við VSÓ Ráðgjöf um að kynna Stjóralausnir sem hjálpartæki til utanumhalds vegna úttekta á leiksvæðum. 
Í Stjóranum er fyllt út í gátlista við hverja skoðun á leiksvæði og haldið utan um allt verkferlið í heild, frá því athugasemd er gerð og þar til úrbætur hafa átt sér stað. Með þessu móti er saga hvers leiktækis skráð í Stjórann og með tímanum verður til gagnabanki með greinargóðum upplýsingum sem einfalt er að leita eftir og sækja. Rekstraraðili leiksvæðanna getur hvenær sem er sótt gögn í Stjórann t.d. um framkvæmd úttekta og stöðu úrbóta en Stjórinn er auk þess veflausn og því getur skoðunaraðili einnig skráð inn athugasemdir á staðnum, hafi hann til þess réttan búnað (fartölvu og gsm).
VSÓ Ráðgjöf hefur yfir að ráða sérfræðingum sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu á leiksvæðum og útbúnaði þeirra ásamt þeim kröfum sem þau þurfa að uppfylla hverju sinni. Þjónusta VSÓ Ráðgjafar felst m.a. í kortlagningu leiksvæðanna og gerð gátlista fyrir hvert svæði en einnig að veita ráðgjöf varðandi frávik sem upp koma s.s. tillögur að úrbótum, hönnun, kostnaðarmat, verklýsingar og þjónustubeiðnir. VSÓ Ráðgjöf framkvæmir ,,Rekstrarskoðanir” á 1-3 mánaða fresti, sé þess óskað og skráir inn í kerfið. Nánari upplýsingar veita Baldur Gunnlaugsson, Magnús Bjarklind og Sigríður Droplaug Jónsdóttir, hjá VSÓ Ráðgjöf.
Sjá einnig www.iceconsult.is
Úr reglugerð 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim.
,,Leiksvæði er svæði, hvort sem er innan dyra eða utan, skipulagt fyrir leik barna svo sem í eða við leikskóla, skóla, gæsluvelli og opin leiksvæði. Einnig leiksvæði annarra aðila þar sem börn eiga greiðan aðgang að eða ætlað börnum svo sem í eða við fjöleignarhús, frístundahús, tjaldsvæði, verslunarhúsnæði og samkomustaði.”
,,Innra eftirlitið skal vera samkvæmt ákvæðum staðalsins ÍST EN 1176. Innra eftirlit skal framkvæma samkvæmt gátlista og í því skal vera slysaskráning. Í innra eftirlitinu skal tilgreina til hvaða úrbóta skal grípa þegar frávik verða frá ákvæðum reglugerðarinnar og hvenær úrbótum var lokið.” ,,Innra eftirlit greinist í reglubundna yfirlitsskoðun, rekstrarskoðun og aðalskoðun.”
|