Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Bitruvirkjun, yfirlýsing vegna athugasemda Gísla Más Gíslasonar

Bitruvirkjun - Yfirlýsing vegna athugasemda Gísla Más Gíslasonar (12.11.07)


VSÓ Ráðgjöf hefur gefið út meðfylgjandi yfirlýsingu vegna athugasemda prófessors Gísla Más Gíslasonar í fjölmiðlum undanfarið:


Reykjavík 12.11.07.

Yfirlýsing frá VSÓ Ráðgjöf

Vegna athugasemda prófessors Gísla Más Gíslasonar í fjölmiðlum undanfarna daga, um skýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar Bitruvirkjunar á Hellisheiði, vill VSÓ Ráðgjöf árétta að skýrslan var unnin af heilindum og metnaði, rétt eins og önnur verk starfsmanna VSÓ. Engum gögnum var stungið undan við gerð skýrslunnar, eins og prófessorinn hefur af einhverjum ástæðum gefið til kynna. Athugasemdum hans verður svarað á faglegan hátt á réttum vettvangi og munu athugasemdir hans og svör við þeim verða birt í endanlegri matsskýrslu sem allir hafa aðgang að.

Mikil vinna á sér stað áður en skýrsla sem þessi um mat á umhverfisáhrifum er gerð. Meðal annars er gerð matsáætlun sem er auglýst, auk þess sem hún er send til fjölda umsagnaraðila. Í því ferli komu engar athugasemdir fram um þá liði sem prófessorinn tiltekur í gagnrýni sinni. Með málflutningi sínum vegur prófessorinn harkalega að heiðri starfsmanna VSÓ að ósekju.

Fyrir hönd VSÓ Ráðgjafar,
Grímur Már Jónasson, framkvæmdastjóri.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is