Rammaskipulag í Hnoðraholti (12.11.07)
Tillaga Arkþings, Arkitema og VSÓ Ráðgjafar, í tveggja þrepa samkeppni um rammaskipulag íbúðabyggðar í Hnoðraholti í Garðabæ, hefur hlotið 1.verðlaun. Tillagan gerir ráð fyrir 682 íbúðum, þar af 32% í einbýli, 29% í rað- og parhúsum og 39% í fjölbýli. Gatnakerfið er greinótt sem auðveldar aðgreiningu umferðarþátta og skapar góð skilyrði fyrir stór og örugg græn svæði. Göngustígakerfi er allt inni á grænum svæðum og lítið um þveranir við bílaumferð. Gert er ráð fyrir grunnskóla og leikskóla á holtinu. Lagt er til að Hnoðraholtsbraut flytjist ofar í brekkuna frá núverandi byggð til að draga úr álagi vegna nýrrar byggðar.
Í greinargerð rýnihóps um niðurstöðu samkeppninnar kemur m.a. fram:
“Hugmynd Arkþings fellur afar vel að núverandi skipulagi og einkennum byggðar í Garðabæ. Rýning á umferðarskipulagi tillögunar leiðir einnig í ljós mikla styrkleika varðandi einfalt umferðarskipulag, styttra gatnakerfi, færri og einfaldari gatnamót og minni halla á umferðaræðum. Með þessu móti verður gatnakerfið öruggt, einfalt og auðskilið, með skýrri aðgreiningu milli akandi umferðar annarsvegar og gangandi og hjólandi umferðar hinsvegar. Lega grænna geira sem tengja núverandi byggð og byggð vestan Reykjanesbrautar við opið svæði í Vetrarmýri er vel til þess fallin að skapa góð og örugg tengsl við aðliggjandi græn svæði. Skipulag í norðvesturhorni er æskilegt þar sem að hús ætluð undir verslun og þjónustu raðast bæði meðfram Arnarnesvegi og Reykjanesbraut sem skapar góð skilyrði til að verjast álagi frá umferðarhávaða. Hugmynd um færslu Hnoðraholtsbrautar er góð og útfæra þarf þá hugmynd betur með tilliti til tæknilegrar útfærslu, öryggis og kostnaðar. Með breyttri legu Hnoðraholtsbrautar er tekið tillit til núverandi byggðar sem er mjög mikilvægur þáttur í uppbyggingu Hnoðraholts í kjölfar skipulagsgerðar. Tillagan er mjög heppileg með tilliti til áfangaskiptingar. Hægt verður á auðveldan hátt að byggja hverfið upp í 4 áföngum að ákjósanlegri stærð.”
Vinningstillagan
|