Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Byggiong háhýsis við Smáratorg vel á veg komin

Bygging háhýsis við Smáratorg vel á veg komin (24.08.07)


Framkvæmdir við Smáratorg, þar sem hæsta bygging landsins rís um þessar mundir, eru vel á veg komnar og óðum styttist í að byggingin verði tilbúin. Gólfplata 18. hæðar hússins var steypt fyrir nokkru og þá eru einungis tvær hæðir eftir því byggingin verður alls 20 hæðir. Fyrstu verslanir opna í október næstkomandi og starfsemi í turninum hefst í desember.

Mörg fyrirtæki munu að sjálfsögðu hafa aðsetur í byggingunni. Á fyrstu hæðinni verður m.a. 2.200 fermetra leikfangaverslun Toys ,R’ Us, húsgagna- og húsbúnaðarverslunin Pier 1 og tiltölulega stórt útibú Kaupþings banka. Af fyrirtækjum sem fyrirhugað er að verði á öðrum hæðum byggingarinnar má nefna endurskoðendafyrirtækið Delouitte & Touche á sex hæðum í turninum, líkamsræktarstöðina World Class á fimmtándu hæð og veitingastaðinn Turninn sem staðsettur verður á tveimur efstu hæðunum. Reikna má með að starfsmenn í byggingunni geti orðið allt að sex til sjö hundruð talsins.

Til að auðvelda þá umferð sem vænta má í kringum turninn við Smáratorg, sem og aðra starfsemi í nágrenninu, verður 5.000 fermetra bílastæðabrú byggð yfir Fífuhvammsveg þar sem bílastæðin á annarri hæð Smáralindar munu tengjast háhýsinu og samfellt bílastæði verður því þar á milli. Til að létta enn frekar á umferð mun verða hægt að aka beint af Reykjanesbraut og inn á bílastæðapallinn. Framkvæmdir eru þegar hafnar við byggingu brúarinnar og gert er ráð fyrir að hún verði tilbúin í nóvember 2007.

VSÓ Ráðgjöf sér um verkefnisstjórn og framkvæmdaeftirlit við byggingu háhýsisins við Smáratorg.

 

 

 

Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um bygginguna:

  • Veitingastaðir verða á 19. og 20. hæð, skrifstofur á 3-18 hæð, verslanir á 1. og 2. hæð og bílageymsla í kjallara.
  • Byggingin verður sú hæsta á landinu, 77,6 m og 20 hæðir. Til samanburðar má geta þess að Hallgrímskirkjuturn er 76 metra hár.
  • Verslunarrými verður í 7.000 m2
  • Bílageymslur verða 10.000 m2
  • Windowmaster gluggakerfi verður í húsinu, náttúruleg loftræsing um opnanlega glugga sem stýrist af veðurstöð á þaki þess.
  • Í byggingunni verða fimm háhraðalyftur og er mesti hraði þeirra 4 m/s. (Hefðbundnar lyftur ná 1,6 m/s). Ein lyftan verður sérhönnuð fyrir slökkvilið. Lyfturnar verða ennfremur með “gervigreind”, þ.e. þær læra á umferðina í húsinu og standa tilbúnar á þeim hæðum þar sem umferð er mest á hverjum tíma.
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is

21.07.2006
26.09.2006

28.11.2006
06.02.2007
07.03.2006
29.05.2007
22.08.07