Nýtt húsnæði Framkvæmdasviðs Hafnarfjarðarbæjar (19.06.07)
Þann 6. júní síðastliðinn var tekin fyrsta skóflustungan að nýju húsnæði fyrir Framkvæmdasvið Hafnarfjarðarbæjar en húsið mun standa við Norðurhellu 2 í Hafnarfirði. Um er að ræða skrifstofu- og þjónustubyggingu samtals um 2500m². 
Verkið var boðið út í alútboði og var Eykt hlutskörpust í þeirri samkeppni ásamt Batteríinu arkitektum og VSÓ Ráðgjöf, sem sér um alla verkfræðihönnun.
Áætlað er að taka húsið í notkun í mars 2008.
Meðfylgjandi mynd er tekin við þetta tækifæri en þarna má sjá Jón Guðmundsson , Reyni Kristjánsson, Björn Hilmarsson, Helgu Stefánsdóttur, Sigurð Haraldsson og Dag Jónsson taka fyrstu skóflustungurnar að nýja húsnæðinu.
|