Leturs
tærð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Gerð umferðarlíkans fyrir höfuðborgarsvæðið lokið

Gerð umferðarlíkans fyrir höfuðborgarsvæðið lokið (11.06.07)


VSÓ hefur lokið við gerð nýs umferðarlíkans fyrir höfuðborgarsvæðið. Um er að ræða líkan sem spáir fyrir um umferðarmagn árið 2024. Verkefnið var unnið í samvinnu við Vegagerðina, Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar og Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og er beint framhald af rannsóknarverkefni frá því í febrúar 2006.

Ávinningurinn af þessu verkefni er nýtt og áreiðanlegt umferðarlíkan fyrir höfuðborgarsvæðið árið 2024 sem ásamt verkefninu frá árinu 2006, myndar fyrsta heildarumferðarlíkan sem unnið hefur verið frá grunni á Íslandi. Þetta heildarlíkan auðveldar alla vinnu við t.d. umferðarspár, breytingar á skipulagstölum, greiningu á fjölda ekinna kílómetra ásamt frekari rannsóknum á t.d. gerð háannatímalíkans, fjölda starfa (í stað fermetra atvinnuhúsnæðis), tilgangi ferða, ferðavenjum og vali á ferðamáta svo eitthvað sé nefnt.

Notuð var svokölluð Pivot aðferð en þá er spáð fyrir um breytingu frá þekktu ástandi í stað þess að spá frá grunni, sem gerir umferðarflæði grunnársins kleift að haldast uppi að vissu marki. Með þessari aðferð er dregið verulega úr ýmsum skekkjum sem geta falist í langtímaspám.

Nýtt umferðarlíkan höfuðborgarsvæðisins - Umferðarspá 2024

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is