Ný og endurbætt Flugstöð Leifs Eiríkssonar opnuð (13.04.07)
Laugardaginn 14. apríl verður mikið um dýrðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þá mun Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra opna flugstöðina formlega eftir stækkun og umfangsmiklar breytingar sem unnið hefur verið að þar frá því árið 2003. Hún afhjúpar jafnframt listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur á brottfararsvæðinu á 2. hæð.
Flugstöðin var upphaflega opnuð formlega við athöfn 14. apríl 1987 og fyrstu farþegarnir fóru um hana að morgni næsta dags. Núna réttum tveimur áratugum síðar er flugstöðin nánast opnuð í annað sinn því svo umfangsmiklar eru breytingarnar á byggingunni að líkja má við umbyltingu innan dyra og utan.
Engan óraði fyrir á sínum tíma að umferð um Keflavíkurflugvöll kallaði á stækkun flugstöðvarinnar svo skjótt sem raun ber vitni um og sérfræðingar hafa þurft að endurskoða umferðarspár sínar aftur og aftur. Það segir sína sögu að þegar fyrsta skóflustungan var tekin að flugstöðinni árið 1983 fóru um 460 þúsund farþegar um þáverandi flugstöð. Árið 2006 fóru 2 milljónir farþega um flugstöðina og gert er ráð fyrir að farþegafjöldinn verði kominn í 3,2 milljónir árið 2015.
Framkvæmdirnar við stækkun og breytingu í flugstöðinni fara á spjöld sögunnar sem þær flóknustu sem um getur hér á landi. Fyrir lá að haldið yrði uppi fullum rekstri í flugstöðinni allan tímann þrátt fyrir umstang og rask sem óhjákvæmilega fylgir framkvæmdunum. Þetta tókst, þökk sé miklu og góðu samstarfi verktakans, Ístaks, og verkefnisstjórnar, hönnuða og framkvæmdaeftirlits. Allir lögðust á eitt til að koma verkinu í höfn við erfiðar aðstæður. Lögð var áhersla á að takmarka sem mest áreiti og óþægindi sem óhjákvæmilega fylgja slíku verkefni. Þá ber að geta þess sérstaklega að starfsfólk fyrirtækja í flugstöðinni sýndi framkvæmdunum lofsverðan skilning og umburðarlyndi. Farþegar voru sömuleiðis þolinmóðir og skilningsríkir gagnvart nauðsynlegum bráðabirgðaráðstöfunum af ýmsu tagi með tilheyrandi óþægindum.
Við hjá VSÓ Ráðgjöf höfum haft á hendi verkefnastjórn við ýmis verkefni í Flugstöðinni um langt árabil og er stækkun Norðurbyggingar og endurgerð hennar stærst þeirra verkefna. Á verksviði okkar var heildarskipulag verkefnisins, kostnaðar- og tímaáætlanir, hönnunarstjórn og samræming reksturs og framkvæmda. Allir megintímasetningar í verkefninu stóðust og verkið er innan þess kostnaðarramma sem því var settur.
Við erum stolt af okkar þætti í þessu verkefni og viljum á þessum tímamótum þakka stjórn flugstöðvarinnar, forstjóra hennar og stjórnendum svo og öllum sem í flugstöðinni starfa fyrir ánægjulegt og gefandi samstarf. Þá viljum við einnig koma á framfæri þakklæti til verktaka, hönnuða, framkvæmdaeftirlits fyrir mikið og gott samstarf í þessu verkefni.
Við óskum Flugstöð Leifs Eiríkssonar innilega til hamingju með nýja og endurbætta flugstöð!
|