Opinn íbúafundur um skipulagsmál í Sandgerði (21.03.07)
Þann 17.mars síðastliðinn var haldinn opinn íbúafundur um skipulagsmál í Sandgerðisbæ. Fundurinn fór fram í nýju ráðhúsi Sandgerðisbæjar fyrir fullu húsi gesta.
VSÓ Ráðgjöf sá um undirbúning og hafði umsjón með fundinum þar sem hönnuðir kynntu verkefni sem eru á döfinni í bænum. Fulltrúar Hornsteina, Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur, THG arkitekta og VSÓ Ráðgjafar kynntu verkefni sem þessir aðilar hafa unnið að í Sandgerðisbæ.
VSÓ Ráðgjöf hefur undanfarið veitt Sandgerðisbæ ráðgjöf á sviði skipulagsmála og kynnti Smári Johnsen skipulagsfræðingur tillögur að rammaskipulagi Hafnarsvæðis í Sandgerðisbæ og þrjár deiliskipulagstillögur innan þess. Í rammaskipulagi Hafnarsvæðis er m.a. stefnt að öruggara og skilvirkara umferðarkerfi, aukinni umhverfisvitund, betra aðgengi gangandi vegfarenda, bættri umgjörð um atvinnustarfsemi og vottun Bláfánans, sem er tákn um að umhverfismál, öryggismál og umhverfisfræðslumál séu í hávegum höfð.
Sýning á verkefnunum sem kynnt voru verður opin í ráðhúsi Sandgerðisbæjar út mars.
Verkefni á döfinni í Sandgerðisbæ
Rammaskipulag Hafnarsvæðis í Sandgerðisbæ
|