Rannsóknar- og þróunarhús Actavis tekið í notkun (07.02.07)
Föstudaginn 26. janúar síðastliðinn var nýtt rannsóknar- og þróunarhús Actavis tekið formlega í notkun. Húsið er um 3.200 m2 en þar mun öll þróunarvinna félagsins á Íslandi fara fram ásamt því að þar er staðsettur hluti af starfsemi gæðasviðs. Alls starfa nú um 100 manns í húsinu.
VSÓ Ráðgjöf sá um verkefnisstjórn við bygginguna ásamt hönnun burðarvirkja.

Á myndinni eru þau Sigurður Óli Ólafsson, aðstoðarforstjóri
Actavis, Fjalar Kristjánsson, verkefnisstjóri Actavis,
Róbert Wessman, forstjóri Actavis og Hafrún Friðriksdóttir,
yfirmaður þróunareininga Actavis í Evrópu.
|