Ný viðbygging Menntaskólans við Hamrahlíð tekin í notkun (26.01.07)
Nýlega var tekin í notkun ný og glæsileg viðbygging Menntaskólans viðHamrahlíð. Í viðbyggingunni eru m.a. bókasafn, íþróttahús, fjölnotasalur, tækjasalur til líkamsræktar og 10 kennslustofur. Auk þess var andyri og aðkoma að skólanum stórbætt.
Verkið var boðið út sem alútboð og átti verktakafyrirtækið Eykt bestu tillöguna að mati verkkaupa. Tillagan var unnin, auk Eyktar, af arkitektastofunni Hornsteinum, VST og Fjarhitun.
VSÓ Ráðgjöf vann að gerð útboðsgagna ásamt því að sinna daglegri umsjón og eftirliti með verkinu. Kostnaður vegna verksins var um 600 milljónir króna en verkið hófst í október 2005.
|