Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Framkvæmdir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Framkvæmdir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (11.12.06)


Framkvæmdir við Flugstöð Leifs Eiríkssonar ganga vel og áfangar í verkinu nást jafnt og þétt. Þann 1.desember var nýr og glæsilegur farangurssalur tekinn í notkun en þar er nýtt og mun afkastameira farangursfæribandakerfi sem leysir það gamla af hólmi. Komufarþegar fara nú um nýtt stigahús niður á 1. hæðina. Þegar þangað er komið geta farþegar valið um að ganga beint inn í komuverslun Fríhafnarinnar eða halda innar á hæðina að nýjum farangursböndum til að sækja farangur.

Nú þegar er byrjað að þilja af gamla stigann sem komufarþegar notuðu áður á leið sinni inn í landið. Stiginn verður fjarlægður og verður það verkefni að öllum líkindum síðasta stóra múrbrotið sem ráðist er í inni í sjálfri flugstöðinni vegna stækkunar og breytinga.

Eftir áramótin verða allmiklar breytingar í innritunarsal flugstöðvarinnar. Tekin verða í notkun ný innritunarborð sem ganga til austurs þvert á þá línu innritunarborða sem nú eru á 1. hæðinni. Nú er einnig verið að byggja glerskála á norðurhlið en þeir munu skapa aukið rými í innritunarsal. Afköst innritunar munu aukast verulega með þessum aðgerðum sem áætlað er að ljúki fyrir páska.

Óðum styttist í verklok þessa mikla og flókna verkefnis sem felst í breytingum á Norðurbyggingu flugstöðvarinnar. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið í byrjun apríl næstkomandi en þá eru 20 ár liðin frá því að flugstöðin var vígð.

Á meðfylgjandi myndum má sjá hluta af nýjum farangurssal flugstöðvarinnar ásamt stigahúsi fyrir komufarþega.

Farangurssalur

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is