Sláttur og hirðing í Garðabæ - Forval (04.12.06)

Fyrir hönd Bæjarsjóðs Garðabæjar óskar VSÓ Ráðgjöf eftir umsóknum frá áhugasömum verktökum til að taka þátt í forvali vegna lokaðs útboðs á slætti og hirðingu í Garðabæ, 2007-2009.
Verkefnin sem boðin verða út eru grassláttur og heyhirðing á tilteknum svæðum í Garðabæ og er heildarstærð þeirra samtals um 50 hektarar. Boðin verða út alls þrjú svæði og verður bjóðendum heimilt að bjóða í eitt svæði, tvö eða öll. Aðeins verður samið um að hámarki tvö svæði við einn og sama verktakann.
Skilafrestur umsókna í forvali er til kl. 12.00, 19. desember 2006. Umsóknum skal skila í afgreiðslu VSÓ Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Forvalsgögn
|