Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Enn fjölgar farþegum í strætó

Enn fjölgar farþegum í strætó (13.11.06)

 

Farþegum í strætó fjölgaði um 7,1% í október í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð þar sem farþegum fjölgar og sjötti mánuður ársins þar sem farþegar eru fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Þessar tölur eru óumdeilanleg vísbending þess að sífellt fleiri uppgötva að breytingarnar sem gerðar hafa verið á leiðakerfinu geri strætó að raunhæfum valkosti þegar ferðamáti á höfuðborgarsvæðinu er annars vegar.

Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Strætó fjölgaði farþegum Strætó í október um 49.010 en þeir voru 739.658 í ár og 690.648 á sama tíma í fyrra.

Það sem af er árinu hefur farþegafjöldi aukist um 247.802 eða 3.9% og er því ljóst að þær breytingar sem gerðar hafa verið á leiðarkerfinu eru til mikilla hagsbóta fyrir viðskiptavini Strætó en VSÓ Ráðgjöf hefur verið ráðgjafi þeirra við hönnun þess frá upphafi.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is