Nesvellir - Miðstöð eldri borgara (08.11.06)
Framkvæmdir eru hafnar við að hanna og byggja upp í Reykjanesbæ einhvern mest spennandi íbúðakost sem völ er á fyrir eldri einstaklinga og hjón hér á landi. Verkefnið er afar metnaðarfullt og mun fullbúið innihalda fjölbýlisíbúðir, raðhúsaíbúðir, öryggisíbúðir, hjúkrunaríbúðir og þjónustumiðstöð auk fjölbreytts útivistarsvæðis. Nánari upplýsingar um Nesvelli í Reykjanesbæ má finna á vef verkefnisins www.nesvellir.is
VSÓ mun annast alla verkfræðihönnun við gerð öryggisíbúða, þjónustumiðstöðvar og hjúkrunaríbúða.
Arkitekt þessara mannvirkja er Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar, THG

Á myndinni má sjá fulltrúa verkkaupa Ragnar Atla Guðmundsson
og fulltrúa VSÓ Símon R. Unndórsson skrifa undir hönnunarsamning
á 1. áfanga öryggisíbúða og þjónustumiðstöðvar.
|