Flutningur verslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (01.11.06)
Verslunar- og þjónustustarfsemi á brottfararsvæði flugstöðvarinnar, 2. hæð, hefur undanfarnar vikur færst um set og hefur flutningurinn gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bláa lónið, 66° Norður, Epal og Leonard eru komnar í sína endanlegu aðstöðu og nú hafa allar aðrar verslanir á brottfararsvæði verið fluttar í bráðabirgðarými.
Þær verslanir sem um ræðir eru Brottfararverslun Fríhafnar, Optical Studio, Landsbankinn og veitingaþjónusta IGS og hefur verktaki nú fengið allt austursvæðið afhent til framkvæmda. Ekki verður um frekari flutning að ræða fyrr en umræddar verslanir flytja á endanlegan stað nú í vor þegar framkvæmdum lýkur.
Verklok eru áætluð 1.apríl 2007 og er ekkert sem bendir til annars en að það gangi eftir.

Á myndinni má sjá nýja staðsetningu brottfararverslunar Fríhafnarinnar.
|