Hringvegur um Hornafjarðarfljót - Tillaga að matsáætlun (25.10.06)
Tillaga að matsáætlun Hringvegar um Hornafjarðarfljót er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun. Um er að ræða tilfærslu frá núverandi vegi og leggur Vegagerðin fram þrjár leiðir til athugunar í mati á umhverfisáhrifum. Nýr vegur mun stytta hringveginn um 10-12 km eftir því hvaða leið verður fyrir valinu og er miðað við að framkvæmdir hefjist árið 2008.
VSÓ Ráðgjöf mun sjá um vinnu við mat á umhverfisáhrifum undir verkstjórn Vegagerðarinnar og hægt verður að fylgjast með framgangi matsvinnunnar á heimasíðu VSÓ.
Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar er 7. nóvember. Hægt er að nálgast matsáætlunina með því að smella á linkinn hér fyrir neðan.
Matsáætlun [pdf]
|